Pökkun og Geymsla á búslóðum – Góð ráð
Þegar þú ert að undirbúa dótið þitt fyrir geymslu til lengri tíma, er mikilvægt að huga að nokkrum þáttum til að tryggja að hlutirnir haldist í góðu ástandi og að auðvelda þér að ná í hluti seinna.
Hér eru nokkur gagnleg ráð til að auðvelda þér að pakka og tryggja að allt gangi snurðulaust fyrir sig:

Flokka, pakka og merkja
Flokkaðu dótið áður en þú byrjar að pakka. Hugleiddu hvort eitthvað sé óþarft og gæti verið hent eða gefið. Þetta fækkar hlutunum sem þarf að geyma og hjálpar til við að halda skipulagi.
Haltu lista yfir það sem þú ætlar að geyma, sérstaklega ef geymslan er til lengri tíma. Það getur verið erfitt að muna hvað er í geymslunni eftir langan tíma og hvað var í hvaða kassa ef allir eru eins.
Merktu alla kassa með innihaldi og skipuleggðu þá þannig að þyngri hlutir séu alltaf neðst og léttari ofar. Þetta kemur í veg fyrir skemmdir og auðveldar aðgengi.
Algeng mistök eru að merkja kassana að ofan en þegar þú staflar þeim upp sérðu ekki hvað stendur á kassanum, því er gott ráð að merkja kassana á einni til tveimur hliðum. Það sparar miklar forfæringar seinna.
Pakkaðu í samræmi við árstíðir eða tilgangi
Ef þú geymir árstíðabundna hluti, hugleiddu hvaða hluti þú gætir þurft á sama tíma. Settu hluti sem þú þarft líkleg á sama tíma í sama kassa og á sama stað í geymsluna, til dæmis þarftu kannski vetrarföt á haustin eða útilegubúnað á vorin þá er gott að þetta sé allt á sama stað. Merktu kassanan eftir árstíðum eða tilgangi, til dæmis "jóladót","vetrarföt" eða útilegudót til að auðvelda leitina þegar tíminn kemur.
Aðgengi að mikilvægum hlutum
Ef þú ætlar að hafa aðgang að einhverjum hlutum reglulega, til dæmis skíðadótið á veturna, settu þá fremst í geymsluna svo þú getir auðveldlega náð í þá án þess að þurfa að taka út mikið af öðrum hlutum.
Pakkaðu rétt inn
Notaðu trausta og sterka kassa sem þola langvarandi geymslu. Oft borgar sig að kaupa sterka plast kassa því þeir staflast vel upp og þola meiri þyngd.
Glermunir og aðrir viðkvæmir hlutir ættu að vera vel pakkaðir með dagblöðum,búbluplasti, teppum eða öðrum svipuðu. Aðalatriðið þegar pakkað er inn brothættum hlutum í kassa er að þeim sé pakkað þétt saman þannig að ekkert glamri þegar kassinn er tekin upp.
Geymdu rafmagnstæki á réttan hátt. Notaðu upprunalegu umbúðir ef mögulegt er eða pakkaðu raftækjum inn í teppi eða með plastfilmu til að koma í veg fyrir rispur og skemmdir í flutningi. Fjarlægðu rafhlöður úr tækjum til að koma í veg fyrir leka.
Fatnaður og textíll. Best er að geyma fatnað í loftæmdum umbúðum sérstaklega allan fatnað úr dýrahárum svo sem ull, feld, leður og silki en ef það er ekki í boði er góð regla að reyna að innsigla kassann vel svo ekki komist að ryk, lykt eða mölur.
Notaðu hlífðarfilmu fyrir húsgögn. Pakkaðu viðkvæmum húsgögnum, eins og sófum eða stólum, inn í plastfilmu eða teppi til að vernda þau fyrir ryki, að þau rifni eða rispist við flutninga eða þegar raðað er í geymsluna. Ef hægt er, taktu húsgögnin í sundur til að spara pláss og koma í veg fyrir skemmdir.
Geymdu bækur og mikilvægar pappírsskjöl í vatnsheldum kössum til að vernda þau fyrir raka og ryki. Oft þarf ekki meira en smá riginingu þegar verið er að flytja, til að pappakassar dragi í sig raka sem getur svo farið í bækurnar eða skjölin.
Kassar með bókun og skjölum verða fljótt þungir því er oft betra að velja minni kassa fyrir þessa hluti svo þeir séu meðfærilegri. Einnig er gott að hafa það í huga þegar staflað er að hafa þá neðarlega eða stafla þeim saman svo þeir kremji ekki viðkvæmari hluti. Einnig er gott að hafa hillu til að raða þessum kössum í ef það þarf að komast í þá reglulega.
Kassar með bókun og skjölum verða fljótt þungir því er oft betra að velja minni kassa fyrir þessa hluti svo þeir séu meðfærilegri. Einnig er gott að hafa það í huga þegar staflað er að hafa þá neðarlega eða stafla þeim saman svo þeir kremji ekki viðkvæmari hluti. Einnig er gott að hafa hillu til að raða þessum kössum í ef það þarf að komast í þá reglulega.
Hvað ætti ekki geyma í geymslunum?
Það er mikilvægt að vita hvað er óheimilt að geyma til að tryggja öryggi allra og koma í veg fyrir skemmdir á þínum hlutumn sem og hlutum annara. Hér er listi yfir þá hluti sem óheimilt er að geyma, athugið að þessi listi er ekki tæmandi en gefur hugmynd um hvað það er sem ekki má geyma, ef í vafa er best að senda okkur fyrirspurn:
• Hættuleg eða eldfim efni (t.d. sýru, eldsneyti, sprengiefni, olíu, gas, málningu, leysiefni, gaskúta og önnur eldfim efni).
• Efni sem gefa frá sér sterka lykt, rotna eða þarfnast kælingar.
• Vélknúin ökutæki og rafgeymar
• Eiturefni og efni sem eru mjög hættuleg fyrir heilsu
• Efni sem gefa frá sér lykt
• Vökvar í miklu magni, jafnvel þótt þeir séu hvorki hættulegir né gefi af sér sterka lykt
Veldu rétta stærð á geymslu
Ákveddu hvað þú ætlar að geyma til að velja rétta stærð á geymsluplássi. Of lítil geymsla getur verið óþægileg og erfitt aðgengi að hlutum, en of stór geymsla getur verið óþarflega dýr. Nýttu lofthæðina – staflaðu kössum upp á öruggan hátt og hugsaðu um að nota hillueiningar fyrir smáhluti. Með þessu geturðu hámarkað geymsluplássið og auðveldað þér að nálgast hluti þegar þú þarft á þeim að halda.
Láttu tryggingfélagið þitt vita
Samningur þinn við Snjallgeymslur er húsaleigusamningur en ekki þjónustusamnningur því bjóðum við því ekki uppá tryggingu á þeim munum sem geymdir eru í húsnæðinu. Leigutaki berð því ábyrgð á að tryggja þá hluti sem hann geymir í leigurýminu kjósir hann að gera svo. Við mælum með að leigutaki hafi samband við sitt tryggingarfélag og tilkynni þá muni sem hann vill tryggja og að þeir séu staðsettir í geymsluhúsnæði okkar í Hafnafirði.
Með þessum ráðleggingum getur þú tryggt að hlutirnir haldist í góðu ástandi í lengri tíma. Að fylgja þessum leiðbeiningum mun einnig hjálpa þér að hámarka plássið í geymslunni og tryggja að þú getir auðveldlega nálgast það sem þú þarft þegar þú þarft á því að halda.
LOSAÐU PLÁSS & LEIGÐU GEYMSLU
Leigðu geymslu og fáðu aðgang strax