Af hverju ættir þú að leigja Snjallgeymslu?

Ertu að upplifa plássleysi heima? Við vitum öll hvernig hlutir safnast upp með tímanum. Áður en þú veist af, er hver einasti skápur, geymsla og bílskúr fullur af hlutum sem þú notar ekki á hverjum degi. Lausnin? Snjallgeymsla! Með því að leigja geymslu getur þú nýtt rýmið heima betur, aukið skipulag og losað þig við óþarfa ringulreið.

Hér eru nokkrar ástæður fyrir því að leiga á geymslu getur verið skynsamleg lausn fyrir þig:

Flutningar eða tímabundin búseta

Ef þú ert að flytja eða býrð tímabundið í minna húsnæði, er Snjallgeymsla frábær lausn til að geyma hluti sem þú ætlar ekki að nota strax en vilt ekki losa þig við. Þú getur tryggt að allt sé geymt á öruggan og snyrtilegan hátt þar til þú flytur í stærra húsnæði eða þegar þörfin breytist.

Endurbætur eða viðgerðir á heimilinu

Á meðan á endurbótum eða viðgerðum stendur getur verið mikið um óreiðu. Snjallgeymslur eru frábær lausn til að geyma húsgögn og annað dót á meðan verkinu stendur, svo þú getir haft vinnusvæðið frítt fyrir verkfærin og tryggt að hlutirnir skemmist ekki.

Dekkjageymsla

Ef þú átt bæði sumar- og vetrardekk getur það verið áskorun að finna pláss til að geyma þau enda er einn eða fleirri dekkjagangar fljótir að fylla geymsluplássið. Snjallgeymsla er fullkomin lausn til að geyma dekkin sem þú ert ekki að nota, svo þau séu ekki fyrir heima hjá þér.

Útihúsgögn

Útihúsgögn og trampólín er gott að setja í geymslu yfir veturinn til að vernda þau frá veðri og vindum, íslenski veturinn þar sem á skiptast frost og þíða ásamt saltfoki fer illa með hluti geymda úti, en einnig er gott að geyma þessa hluti inni svo þau fjúki ekki og skemmist eða valdi skemmdum. Snjallgeymslur tryggja að húsgögnin séu geymd við réttar aðstæður þar sem þau skemmast ekki, svo þú getir notið þeirra í fullkomnu ástandi þegar vorið kemur aftur.

Árstíðabundnar skreytingar

Jólatré, jólaskreytingar, páskaegg og hrekkjavökuskraut – árstíðabundnar skreytingar taka oft pláss en eru aðeins notaðar stuttan tíma. Snjallgeymsla gefur þér fullkominn stað til að geyma þessar skreytingar milli hátíða, svo þær séu ekki fyrir heima hjá þér og þú hafir pláss fyrir aðra hluti.

Skíði og snjóbretti

Vetraríþróttabúnaður, eins og skíði, snjóbretti, skíðaskór, hjálmar osfrv getur verið fyrirferðarmikill og erfitt að geyma yfir sumartímann. Með Snjallgeymslu geturðu geymt vetrarbúnaðinn í öruggum aðstæðum yfir sumarið, svo hann sé tilbúinn þegar vetrarvertíðin kemur aftur.

Vetrarföt

Vetrarfatnaður, þar með taldar þykkar úlpur, kuldagallar og vetrarfylgihlutir, taka mikið pláss í fataskápnum sérstaklega fyrir stórar fjölskyldur. Þegar sumarið kemur, getur verið sniðugt að geyma þessi föt í Snjallgeymslu og nýta plássið í skápnum fyrir léttari fatnað.

Ferðatöskur

Ferðatöskur eru nauðsynlegar en notast aðeins á ferðalögum, sem oftast eru nokkrum sinnum á ári. Þær taka mikið pláss þegar þær eru ekki í notkun. Í stað þess að láta þær fylla fataskápa eða geymslur, er Snjallgeymsla frábær lausn til að geyma þær á öruggan hátt.

Hjólageymsla

Ef þú átt hjól sem þú notar ekki á hverjum degi, eða ekki yfir vetrartímann, getur það verið praktískt að geyma það í Snjallgeymslu. Þetta losar um pláss í bílskúrnum eða geymslunni heima hjá þér fyrir önnur tæki og búnað.

Sláttuvél og garðverkfæri

Sláttuvélar, garðverkfæri og annar sumarbúnaður er nauðsynlegur yfir sumarið en yfir vetrarmánuðina getur hann tekið dýrmætt pláss. Með því að geyma þessi tæki í Snjallgeymslu yfir vetrartímann, getur þú nýtt bílskúrinn fyrir önnur tæki eða hluti sem þú þarft aðgengi að í staðinn nú eða bara geymt bílinn í bílskúrnum. Mundu bara að tæma bensíntankinn.

Útilegubúnaður

Ef þú nýtur þess að fara í útilegur eða ferðalög í náttúrunni, þá veistu hversu mikið pláss búnaðurinn getur tekið. Tjöld, svefnpokar, felliborð og stólar, eldunaráhöld og annan búnað sem þarf fyrir útilegu er oft aðeins notaður á sumrin. Með því að geyma útilegubúnaðinn í Snjallgeymslu yfir veturinn, getur þú sparað mikið pláss heima og haldið heimilinu snyrtilegu. Þegar útilegutímabilið kemur aftur, verður búnaðurinn á öruggum stað og tilbúinn til notkunar.

Nýttu plássið betur

Snjallgeymsla býður upp á fjölbreyttar lausnir fyrir geymslu á þínum hlutum og hjálpar þér að nýta plássið heima betur og hér að ofan eru nokkrar hugmyndir um hvað þú gætir notað allt plássið í.
Hvort sem þú ert að leita að stað til að geyma árstíðabundinn búnað, hluti sem þú notar sjaldan, eða vilt skipuleggja heimilið betur, þá getur leiga á aukageymslu verið fullkomin lausn. Að losa um pláss heima leiðir til skipulagðara og afslappaðra umhverfis, og Snjallgeymslur gera það mögulegt á auðveldan og öruggan hátt og þú heldur áfram að hafa aðgang að þínum hlutum þegar þig vantar þá.
Íhugaðu að leigja geymslu í dag og njóttu aukins rýmis og betra skipulags á heimilinu!

LOSAÐU PLÁSS & LEIGÐU GEYMSLU 

Leigðu geymslu og fáðu aðgang strax
Leit